29.04.2026 21:14

Ljósafellin mætast i Fáskrúðfirði

                                   1277 Ljósafell SU 90 og 2401 Ljósafell su 70 mynd Guðlaugur Björn Birgisson 

 

 Af vef Austurfrettar 

Nýtt Ljósafell kom til heimahafnar á Fáskrúðsfirði í fyrsta sinn í gærkvöldi. Eldra skipið kvaddi um leið en í gær var gengið frá sölu þess til Færeyja.

Skipstjórinn vonast eftir hagkvæmari veiðum með nýja skipinu.

Nýja skipið hét áður Þórunn Sveinsdóttir, smíðað í Danmörku árið 2010 og alla tíð gert út frá Vestmannaeyjum. Loðnuvinnslan tók við skipinu fyrir rúmum mánuði í Færeyjum en þangað var það sent í endurbætur.

Skipið yfirgaf Færeyjar um kvöldmatarleytið á mánudag og var tæpum sólarhring síðar komið inn á Fáskrúðsfjörð.

Þar beið það á meðan eldra Ljósafell var gert tilbúið til brottfarar, en það fór frá bryggju nokkurn veginn á slaginu átta í gærkvöldi.

Skipin mættust skammt utan við bæinn og sigldu inn með þorpinu í hring áður en leiðir skildu; gamla Ljósafellið hélt áfram út fjörðinn meðan hitt lagðist að bryggju.

Ljósafell SU 90 selt til Færeyja

Í gærmorgun var gengið frá sölu eldra Ljósafells til Færeyja og um leið varð ljóst að hægt væri að búa til litla athöfn í gærkvöldi þar sem það yrði kvatt og nýju skipi heilsað. Talsverður fjöldi fólks lagði leið sína niður á bryggju af því tilefni í kvöldsólinni.

Hjálmar Sigurjónsson var skipstjóri í þessari síðustu ferð. Nokkur áhugi mun hafa verið á að fá að fara með og komust þar færri að en vildu. Búist er við að skipið komi til Færeyja seint í kvöld en strekkingsvindur er á leiðinni og talsverð alda sem skipið skoppar á því það er tómt.

                  1277 Ljósafell Su 90 og Ljósafell Su 70 mynd Guðlaugur Björn Birgisson 2026   

      Brottför Ljósafellsins markar ekki bara straumhvörf í útgerðarsögu Fáskrúðsfjarðar, þangað sem skipið kom nýtt sumarið 1973

heldur líka Íslendinga því það er hið síðasta af svokölluðum Japanstogurum. Það er samheiti yfir tíu skip sem smíðuð voru fyrir Íslendinga

í Japan snemma á áttunda áratugnum.   

Nýja skipið ber skipaskrárnúmerið SU 70 á meðan hið eldra var SU 90. Kristján Gísli Gunnarsson, skipstjóri Ljósafells, tók við skipinu í Færeyjum og sigldi því heim. „Ferðin var fín miðað við 15-18 m/s hliðarvind. Það valt en lítið enda velta öll skip,“ sagði hann um siglinguna til Fáskrúðsfjarðar.

Í nýja skipinu er talsvert betri aðstaða til vinnu auk þess sem öflugra skip skilar hagkvæmari veiðum. „Ég skýt á að þetta sé 80% uppfærsla. Togdekk, millidekk og lest eru miklu betri. Það tekur 60% meira í körum og togetan er meiri því nýja skipið getur dregið tvö troll.

Öflugra skip gefur okkur meiri tíma í að elta uppi tegundir. Ég býst ekki við að þorskskammturinn okkar breytist miðað við viku frá viku, en ég á von á að við eyðum minni tíma í að ná honum. 

Við höfum stundum skotist í minni fiska því við höfðum ekki getu í annað. Það að við getum notað tvö troll gefur okkur möguleika á að draga dýpra og þá fáum við kannski stærri og verðmætari fisk, sem er betra fyrir bæði okkur og frystihúsið.“

Ljósafell SU 70 fer til veiða um helgina

Þegar skipin sigldu saman hlið við hlið um fjörðinn í gærkvöldi tók fólk eftir því að nýja Ljósafellið er breiðara en styttra en hið eldra. „Nýja skipið er tæpum tveimur metrum breiðara en 7-8 metrum styttra. Það er samt stærra í tonnum talið því metri í breidd telur svo mikið.

Klefar og vistarverur eru þrengri. Við tvímenntum bara í einum klefa í gamla skipinu en gerum það í fleirum í þessu. Að öðru leyti eru þetta fínir klefar,“ segir Kristján Gísli.

Áhöfnin af eldra skipinu færist á það nýja. Nú er verið að gera það klárt fyrir fyrstu veiðiferðina. „Við förum út helst á sunnudag og ég hlakka til að takast á við þetta,“ segir Kristján Gísli að lokum.

 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 611
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 3617
Gestir í gær: 10
Samtals flettingar: 2878893
Samtals gestir: 72893
Tölur uppfærðar: 30.4.2026 02:35:27
www.mbl.is